Undir Gullregninu

Forsíða kápu bókarinnar

Undir Gullregninu er áminning um að engin ósk er of stór og að lífið snýst um að elta draumana.

Undir Gullregninu er hjartnæm saga um konu sem býr í sveit, um líf hennar, ástir og örlög. Frásögnin er lituð tilfinningu og hlýju, séð með augum þroskaskertrar konu að nafni Telma sem átti hugmyndina að bókinni. Telma er drifkraftur þess að bókin er gefin út. Sagan er skrifuð af Söndru Bergljótu Clausen eftir hugarburði Telmu svo hennar æðsti draumur, að gefa út bók, verði að veruleika.