Uppeldisbókin
Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar
Í bókinni er lýst hvernig börn læra frá unga aldri af samskiptum við foreldra sína og því fordæmi sem þeir gefa með eigin hegðun. Gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á færni sem foreldrar þurfa að hafa eða tileinka sér til að ýta undir æskilega hegðun barna sinna.
Uppeldisbókin kennir hvernig hægt er að:
Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika.
Styðja börn til að þroska með sér innri styrk, sjálfstæði og sjálfstraust.
Skipuleggja uppeldið á árangursríkan hátt og skilja ástæður mistaka.
Kenna börnum færni sem nýtist til frambúðar og ýtir undir farsæld og velgengni.
Ná tökum á efasemdum og neikvæðum tilfinningum í krefjandi aðstæðum.
Takast á við algengan vanda, t.d. í sambandi við háttatíma, reglur, reiðiköst, árásarkennda hegðun og margt fleira.
Að vera foreldri er sennilega bæði mikilvægasta og vandasamasta verkefnið sem flest okkar takast á við. Foreldrahlutverkið snýst alls ekki eingöngu um að ala upp börn sem haga sér vel og gengur vel í skóla, heldur ekki síður um að laða fram og styrkja eiginleika og færni sem stuðla að persónulegri vellíðan og farsælum samskiptum við aðra. Í bókinni er lýst hvernig börn læra frá unga aldri af samskiptum við foreldra sína og því fordæmi sem þeir gefa með eigin hegðun. Efnið skiptist í aðgengilega kafla þar sem gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á færni sem foreldrar þurfa að hafa eða tileinka sér til að ýta undir æskilega hegðun barna sinna. Bókin kemur nú út í nýrri þýðingu og uppfærslu Gyðu Haraldsdóttur sálfræðings og er sérstaklega hugsuð sem ítarefni fyrir námskeiðin Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar fyrir foreldra og fagfólk.