Varkár
Varkár er verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.
Margrét Bjarnadóttir er fjöllistakona og danshöfundur. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998-2002).Varkár er fyrsta skáldsaga Margrétar.