Veiðivinir 2

Forsíða kápu bókarinnar

Vinirnir Páll og Bjarni eru enn og aftur að undirbúa veiðiferðir sumarsins, skólinn búinn og líkt og síðasta sumar hafa þeir platað afa Páls til koma þeim á milli veiðistaða í sumarfríinu. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Veiðivötn, sem er náttúruperla rétt vestan við Vatnajökul, og núna er stelpa með í för.

Veiðivötn samanstanda af allt að 50 vötnum sem dreifast um stórt svæði og hægt að veiða fisk í þeim öllum, urriða og bleikjur. Páll og Bjarni geta vart beðið eftir að komast úr bænum til að upplifa ævintýrin sem bíða þeirra í sumarfríinu.

Líklegast kynnast þeir einnig nýju fólki, þjálfurum og stórsöngvurum, veiðistúlkum og furðuverum, sem gerir fríið enn skemmtilegra.

Gunnar Bender hefur stundað laxveiðar frá unga aldri og er orðinn einn þekktasti laxveiðimaður landsins. Sögurnar um Pál og Bjarna eru mikið byggðar á reynslu höfundar og þeim fjölmörgu ævintýrum sem hann hefur upplifað í gegnum árin að eltast við þann stóra. Gunnar hefur gefið út bækur um laxveiðar, skrifað greinar, ritstýrt Sportveiðiblaðinu, framleitt veiðiþætti fyrir sjónvarp og net, auk þess að halda úti vefsíðu um sportveiðar.