Veraldarvafstur

Forsíða kápu bókarinnar

Hér er sögð saga af farsælum ferli Sveins B. Valfells í viðskiptum en líka sagt frá manninum sjálfum og fjölskyldu. Sagan heldur áfram af syni hans, Sveini Valfells yngri, og saman fléttast sögur tveggja kynslóða en bókin er um leið aldarspegill sem varpar ljósi á ótrúlegar þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa á Íslandi frá upphafi tuttugustu aldar

Í huga margra var Sveinn B. Valfells holdgervingur einkaframtaksins á Íslandi á þriðja fjórðungi tuttugustu aldar. Hann lagði gjörva hönd á plóg á mörgum sviðum: í fataframleiðslu, byggingariðnaði, sjávarútvegi, flug- og hótelrekstri, bankastarfsemi og undirbúningi stóriðju, auk þess sem hann sinnti lengi tímafrekum trúnarstörfum fyrir samtök iðnrekenda. Hér er sögð saga af farsælum ferli í viðskiptum en líka sagt frá manninum sjálfum og fjölskyldu. Sagan heldur áfram af syni hans, Sveini Valfells yngri, og saman fléttast sögur tveggja kynslóða en bókin er um leið aldarspegill sem varpar ljósi á ótrúlegar þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa á Íslandi frá upphafi tuttugustu aldar fram til okkar daga.