Við brúna og aðrar þýskar sögur
Í smásagnasafninu Við brúna og aðrar þýskar sögur er að finna verk eftir tuttugu og þrjá rithöfunda. Sögurnar komu út á 20. og 21. öld, flestar í Þýskalandi en tvær þeirra má rekja til þýskumælandi minnihlutahópa í Evrópu. Sögurnar veita áhugaverða og grípandi innsýn í þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem urðu í Þýskalandi á þessu tímabili.
Í smásagnasafninu Við brúna og aðrar þýskar sögur er að finna verk eftir tuttugu og þrjá rithöfunda. Sögurnar komu út á 20. og 21. öld, flestar í Þýskalandi en tvær þeirra má rekja til þýskumælandi minnihlutahópa í Evrópu. Sögurnar veita áhugaverða innsýn í þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem urðu í Þýskalandi á þessu tímabili.
Höfundar verkanna eru Benedict Wells, Bertolt Brecht, Christa Moog, Christa Wolf, Elisabeth Langgässer, Elke Heidenreich, Franz Kafka, Günter Grass, Hans Magnus Enzensberger, Heinrich Böll, Helga M. Novak / María Karlsdóttir, Hermann Hesse, Herta Müller, Ingo Schulze, Jenny Erpenbeck, Luise Rinser, Marie Luise Kaschnitz, Martin Walser, Michael Thode, Paul Maar, Siegfried Lenz, Thomas Mann og Wolfgang Borchert.