Víkingar á vesturleið
Stöð og Vogur, áfangar á langri leið
Í þessari bók eru tveir staðir á Íslandi í aðalhlutverkum, Vogur í Höfnum, yst á Reykjanesi og Stöð á Stöðvarfirði. Þeir eru ein helsta kveikjan að ritun þessarar bókar.
Annar staðanna er nánast eins vestarlega og komist verður á Íslandi og hinn er sömuleiðis nánast eins austarlega og komist verður þar. Báðir staðirnir gáfu tilefni til þess að höfundur fór að hugleiða þann möguleika að þeir væru eitthvað annað en hefðbundin landnámsbýli.
Þegar öllu er á botninn hvolft fjallar þessi bók um það hvernig norrænt fólk sigraði Atlantshafið öldu fyrir öldu og skref fyrir skref, bresku eyjarnar, Færeyjar, Ísland, Grænland og Vínland. Hver staður var nauðsynlegt skref til vesturs þar til ekki varð komist lengra. Í stuttu máli var atburðarrásin sú að finna, nýta og nema í öllum þessum tilfellum.