Villigötur valdsins
Villigötur valdsins eftir Óla Björn Kárason er ádeila á útþenslu ríkisins, ríkishyggju og pólitískan rétttrúnað. Í bókinni hvetur hann hægri menn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang og standa vörð um sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins.
Villigötur valdsins er ádeila Óla Björns Kárasonar á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur leiðarvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar hugmyndafræði ríkishyggjunnar sem nýtur velvildar í öllum stjórnmálaflokkum. Of mörgum finnst þægilegra að setja hugmyndafræðina ofan í skúffu og telja sjálfum sér trú um að hægt sé að leysa hvers manns vanda á grunni ríkishyggju. Í Villigötum valdsins hvetur Óli Björn Kárason hægri menn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang - með áherslu á sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins.