Villistrákarnir
„Hvað étur peningavélin? Hún étur æsku, frjálsræði, lífmagn, fegurð, og umfram allt, étur hún sköpunarmátt. Hún étur gæði og skítur magni.“ – William Burroughs. Í þessari frægu bók segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinsegin ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
Þeir brjóta allar reglur samfélagsins í sama mund og hrun vestrænnar siðmenningar vofir yfir.
Með brotakenndum stíl sínum leikur Burroughs sér með tíma og rúm og dregur lesandann inn í óreiðukennda veröld þar sem siðferði, vald og mannlegt eðli eru stöðugt á reiki. Hefðbundin mörk leysast upp þar sem hold, langanir, frelsi, tækni og ofbeldi fléttast saman í trylltri sýn á fallandi heim.
Villistrákunum hefur verið lýst sem martraðakenndu meistaraverki, hrífandi og ögrandi í senn.