Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Völundarhús tækifæranna

Bylting á vinnumarkaði, giggarar og aukin lífsgæði

  • Höfundar Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Herdís Pála Pálsdóttir
Forsíða bókarinnar

Þær miklu tæknilegu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf okkar munu veita fólki á vinnumarkaði ný og spennandi tækifæri. Eðli starfa og vinnustaða er að gjörbreytast og samband starfsfólks og vinnustaðar mun verða með allt öðrum hætti en áður.

Þær miklu tæknilegu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf okkar munu veita fólki á vinnumarkaði ný og spennandi tækifæri. Þessi umbylting getur orðið lykill að betra og innihaldsríkara lífi.

Hinum svokölluðu giggurum fer stöðugt fjölgandi – fólki sem tekur að sér verkefni í takmarkaðan tíma en hverfur svo á vit nýrra viðfangsefna; fólki sem selur vinnu sína á markaðstorgi þekkingarinnar. Eðli starfa og vinnustaða er að gjörbreytast og samband starfsfólks og vinnustaðar mun verða með allt öðrum hætti en áður.

Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir er dósent við HÍ og hefur sérhæft sig í vinnumarkaðsmálum. Herdís Pála Pálsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri hjá Deloitte.

Í þessari ómissandi bók fjalla Árelía Eydís og Herdís Pála um það hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á vinnumarkað framtíðarinnar, giggara og aðra – og hvernig best er að fóta sig í völundarhúsi tækifæranna.