Von frá Brooklyn

Forsíða kápu bókarinnar

Baráttukonan Hope Knútsson fluttist búferlum frá Bandaríkjunum til Íslands árið 1974. Fimm árum áður hafði hún komist í kynni við land og þjóð þegar hún hafði viðkomu á Íslandi á leið sinni til Evrópu.

Þetta hafði afdrifaríkar afleiðingar. Í þessari bók segir frá hvernig Hope farnaðist hér á landi og hvaða áhrif hún hefur haft á íslenskt samfélag.

Hún sýndi djörfung og dug með því að vera brautryðjandi og fyrirmynd annarra innflytjenda, barðist ötullega fyrir framgangi iðjuþjálfunar, var potturinn og pannan við stofnun Siðmenntar og fékk alþjóðleg verðlaun fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu húmanisma.