Höfundur: Birna Arnbjörnsdóttir

Fjöltyngi á Íslandi

Inngangur að annarsmálsfræðum

Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, hefur um árabil rannsakað og gefið út rit um sambýli tungumála hjá einstaklingum og samfélögum. Bókin er inngangur að annarsmálsfræðum fyrir kennara, kennaranema og aðra sem vilja dýpka þekkingu sína á fjöltyngi og áhrifum þess á nám sívaxandi hóps fjöltyngdra ungmenna á Íslandi.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur Fjöltyngi og fjölskyldur Birna Arnbjörnsdóttir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan Í þessari bók er að finna umfjöllun um hlutverk og áhrif samfélagsins og fjölskyldunnar á þroska og menntun fjöltyngdra barna. Höfundurinn hefur um árabil rannsakað sambýli tungumála og gefið út bækur og rit um áhrif þeirra á sjálfsmynd, uppeldi og nám ungmenna sem nota fleiri en eitt tungumál í daglegu lífi.
Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og menningu Milli mála 2022 Sérhefti: Nýjustu rannsóknir í annarsmálsfræðum Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan Sérhefti Milli mála 2022 er helgað nýjustu rannsóknum á sviði annarsmálsfræða og inniheldur ritrýndar fræðigreinar um það efni. Gestaritstjóri er Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands. Allar greinar heftisins eru á íslensku.