Höfundur: Elisa Biagini

Blá tré: Ilmurinn er annars staðar

ítölsk samtímaljóð

Í þessari bók er að finna ljóð eftir tíu starfandi ítölsk skáld sem vakið hafa athygli í heimalandinu og víðar. Þau valdi skáldkonan Elisa Biagini, sem sjálf er í þeirra hópi, og þýðingar gerði Sigurbjörg Þrastardóttir. Speglað verklag er að finna í ítölsku kveri um íslenska samtímaljóðlist sem í undirbúningi er á Ítalíu.