Óskráðar minningar mínar
Katia Mann, eiginkona þýska skáldjöfursins Thomasar Mann, varði ævinni í að skýla eiginmanni sínum fyrir umheiminum svo að hann gæti skrifað meistaraverk sín. „Í þessari fjölskyldu verður að vera einhver sem ekki skrifar,“ sagði Katia jafnan þegar hún var hvött til að skrifa endurminningar sínar. Á efri árum féllst hún loks á að segja ævisögu sína.