Höfundur: Jón Torfason

Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar Lækningalán

Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarstað

Jón Jónsson (1772–1866) var prestur í Stærri-Árskógi og á Grenjaðarstað. Þótt hann væri ekki læknislærður fékk hann leyfi til að stunda lækningar í sinni sókn árið 1812. Hér eru birtar tvær af átta ítarlega færðum dagbókum hans um læknisverkin með nöfnum sjúklinga, nákvæmum lýsingum á sjúkdómum og hvernig hann reyndi að bæta úr meinum.