Hér kemur Fílsi
Upplifðu venjulegan dag í lífi Fílsa, frá morgni til kvölds. Dagurinn hefst á því að Fílsi fer á fætur, fær sér að borða, leikur úti og inni, fer í bað og í dagslok fer krílið að sofa. Í bókinni er að finna marga kunnuglega hluti til að benda á, nefna á nafn og spjalla um. Skemmtileg og fræðandi myndabók með lyftispjöldum á hverri opnu.