Höfundur: Katrín Jakobsdóttir

Vorblót

Vigdís Magnúsdóttir hefur gefist upp á doktorsnámi í heimspeki og ákveður að hasla sér völl í hugleiðslu og öðrum andlegum málefnum. Hún auglýsir helgarnámskeið í ríkmannlegri villu fyrir utan Hveragerði þar sem kynna á „fjölbreyttar leiðir til að öðlast innri ró og næra andann“. Allt gengur að óskum – þangað til framið er morð.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Franski spítalinn Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson Veröld Febrúar 1989. Maður finnst látinn í Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði, draugalegu timburhúsi í niðurníðslu. Sunna, blaðamaður á Morgunblaðinu, fer austur til að grennslast fyrir um málið en bæjarbúar vilja lítið við hana tala og brátt fer hún að óttast um öryggi sitt og sinna nánustu.
Reykjavík Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir Veröld Í ágúst 1956 hverfur ung stúlka, Lára Marteinsdóttir, úr vist í Viðey og eftir það spyrst ekkert til hennar. Áratugum saman hvílir mál Láru þungt á íslensku þjóðinni og engin skýring kemur fram á hvarfi hennar. Í ágúst 1986 fer ungur blaðamaður að grafast fyrir um þetta dularfulla mannshvarf – með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.