Sanna sagan um nefið á Gosa
Syndsamlegt ævintýri fyrir fullorðin börn! Ný bók í seríunni skemmtilegu um litla, feita og fordómafulla letihauginn Evert Bäckström lögregluforingja sem með einhverjum óskiljanlegum hætti tekst jafnan að skjóta kollegum sínum ref fyrir rass. Bækur sænska verðlaunahöfundarins Leifs GW Persson hafa hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.