7 drekar
Drekarnir sjö eru umfram allt góðir. Þeim þykir vænt um manneskjurnar, sérstaklega börn. Þeir elska börn. Drekarnir vernda jörðina, þeir vernda hafið, gróðurinn og dýrin. Svo eru þeir rosalega skemmtilegir, alltaf til í glens og gaman. Hægt er að skanna QR-kóða og hlýða á tónlist eftir Rory Murphy við sögur drekanna.