Talnapúkinn
Talnapúkinn býr í helli í miðju jarðar og veit ekkert skemmtilegra en að telja. Vandinn er að hann kann bara að telja upp að níu. En úr hellinum liggja göng til allra landa og Talnapúkinn ákveður að halda út í hinn stóra heim í von um að læra fleiri tölur og fræðast um grunnaðferðir í reikningi. Sívinsæl bók sem er nú loksins fáanleg á ný.