Höfundur: Páll Jakobsson
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
| Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Almanak Háskóla Íslands 2025 | Gunnlaugur Björnsson og Páll Jakobsson | Háskólaútgáfan | Í almanaki 2025 er grein um fjarreikistjörnur, en það eru reikistjörnur utan okkar sólkerfis. Með þróaðri mælitækni er nú auðvelt að finna þær og nálgast staðfestur fjöldi 6000. Einnig er fjallað um dvergstjörnur í geimnum. Loks er pistill um fjarlægðarmælingar í geimnum og fjarlægustu fyrirbæri sem fundist hafa í alheimi. |
| Almanak Háskóla Íslands 2026 | Gunnlaugur Björnsson og Páll Jakobsson | Háskólaútgáfan | Í almanaki 2026 er grein um uppruna frumefnanna. Í annarri grein er fjallað um flökkureikistjörnur, en það eru reikistjörnur sem ekki ganga um neina sólstjörnu. Þá er stuttur pistill um dvergreikistjörnur í okkar sólkerfi, en þær eru nú níu talsins. Pistill um almyrkva á sólu 12. ágúst sem mun sjást um allt landið vestanvert. |