Rottukóngurinn
Margslungin og metnaðarfull sænsk glæpasaga. Vanessa Frank rannsakar morð á þrítugri konu í Stokkhólmi en þar í borg fer ofbeldisglæpum gegn konum síst fækkandi. Bakslagið í kjölfar MeToo er áþreifanlegt og vaxandi fylgi kvenhataranna í stafrænu Incel-hreyfingunni vekur ugg. Og þeir láta sér ekki allir nægja að fá útrás fyrir hatrið við tölvuna.