Sería Sögufélags Þurfamenn fá mannréttindi - 1927
Lengi vel var gert ráð fyrir að fólk sem þáði fátækrastyrk væri svipt borgaralegum réttindum, eins og atvinnufrelsi og kosningarétti. Árið 1927 var meirihluti þingmanna orðinn sammála um að þetta væri óréttlátt. Þurfamenn skyldu fá mannréttindi – þó bara þeir sem ættu þau skilið. En hvernig átti að greina milli hinna verðugu og hinna óverðugu?