Morð í Múlasveit
Niðursetningurinn Einar Gíslason deyr vofeiflega í fjárhúsunum Skálmardal í Múlasveit. Slys segir bóndinn Jón rúgkútur. En sár á höfði og járnnaglar sem reknir eru upp í iljar þess látna segja aðra sögu. Hér er rakin hrollvekjandi spennusaga sem byggir á heimildum úr skjölum og rannsókn af vettvangi. Mögnuð frásögn af dularfullu sakamáli á 19. öld.