Höfundur: Rósella Mosty

Sagan mín, sagan hennar

frásögn af lífi, áföllum og sorg

Rósella Mosty hefur lifað margt. Hún missti föður sinn ung að árum, flutti úr landi, byggði upp fjölskyldu, eignaðist börn og barnabörn og taldi sig hafa kynnst bæði gleði og sorg. En ekkert gat búið hana undir það þegar elsta dóttir hennar, Ester Eva, veiktist skyndilega alvarlega aðeins nokkrum mánuðum eftir fæðingu yngri sonar síns.