Þegar litla systir kom í heiminn Þegar litla systir kom í heiminn
Bókin fjallar um tilfinningar og hræðslu hjá barni sem er að fara að eignast lítið systkini, óttann við að vera ekki lengur aleitt með mömmu og pabba. Reynsla barnsins er ein af birtingarmyndum kvíða og bókin getur nýst sem handbók þeirra sem vinna með börnum og foreldrum/forráðmönnum. Opnar spurningar fylgja hverri opnu sem hvetja til umræðu.