Írissa og Issi í frumskóginum
Systkinin Írissa og Issi dvelja hjá Kötu frænku. Hjá Kötu frænku leynist frumskógur með mörgum dýrum og stórum plöntum. Þar gerist margt áhugavert og spennandi.
Systkinin Írissa og Issi dvelja hjá Kötu frænku. Hjá Kötu frænku leynist frumskógur með mörgum dýrum og stórum plöntum. Þar gerist margt áhugavert og spennandi.
Ljóna dreymir um að æfa karate og verða karatemeistari. Börnin í karatesalnum bíða öll í hvítum búningum með hvít belti í fyrsta karatetímanum hans Ljóna. Hvað þarf Ljóni að gera til að verða karatemeistari?
Á hverjum laugardegi hjóla músasysturnar í dansskólann. Þar tipla þær á tánum, hoppa og snúast í hringi og sveifla skottinu í takt við tónlistina. Ekkert í heiminum er skemmtilegra! Allt í einu gerðist nokkuð sem enginn átti von á … Hvað skyldi það vera?
Það hefur aldrei verið tími hjá mömmu Steindísar til að stoppa við kastalann. En í þetta skipti hefur mamma lofað Steindísi að þær ætli að skoða hann saman. Steindís er mjög spennt fyrir að skoða þennan alvöru kastala og uppgötva hvað leynist þar inni.