Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Á vori lífsins

Minningar

  • Höfundur Guðfinna Ragnarsdóttir
Forsíða bókarinnar

Guðfinna Ragnarsdóttir fæddist í hinu fræga Tobbukoti við Skólavörðustíg og ól bernskuár sín þar en fluttist fjögurra ára gömul í Laugarneshverfið sem þá var í örum vexti. Hún lýsir með lifandi hætti æskuárum sínum á Hofteigi, fjörmiklum ungdómsárum í menntaskóla og bregður upp eftirminnilegum myndum af mannlífi á Íslandi upp úr miðri síðustu öld.

„Mig langar með þessari bók að deila minningunum með mínu samferðafólki, lýsa lífinu, fjölskyldunni, fólkinu mínu, vinunum, sumarvinnunni, sveitinni, áhugamálunum, ljóðunum, skólanum, menntaskólaárunum, ástarmálunum og þeirri gleði og sorg sem lífið býður upp á – á vori lífsins.“

Svo kemst Guðfinna Ragnarsdóttir að orði í upphafi þessarar skemmtilegu og fróðlegu bókar.

Guðfinna Ragnarsdóttir er jarðfræðingur frá Stokkhólmsháskóla og blaðamaður frá Journalisthögskolan í Stokkhólmi. Hún kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í nær þrjá áratugi og hefur verið ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins í tuttugu ár. Hún hefur áður sent frá sér bókina Sagnaþætti Guðfinnu þar sem hún lýsir lífi alþýðufólks víða um land.