Innanríkið Aðfangadagar
Höfundur lokast inni í yfirgefinni byggingu í Austurbænum en áður en það gerist nær hann að fanga ýmislegt og koma í orð. Hann veit stundum ekki hvort hlutir verði til í höfði hans eða séu aðfengnir – eða hvort munur er á þessu tvennu. Bráðskemmtilegt sjálfstætt framhald af Innanríkið – Alexíus.
Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út 1986. Meðal skáldsagna Braga eru Hvíldardagar, Samkvæmisleikir, Fjarveran og Sögumaður. Fyrir tveimur árum kom út bók hans Innanríkið – Alexíus, og er þessi bók hér, Innanríkið – Aðfangadagar, sjálfstætt framhald. Á þessu ári kemur einnig út ljóðaúrval Braga, Á horni Bayswater Road og Lækjargötu – 100 og eitthvað ljóð, 1986–2026.