Áður en ég sofna

Forsíða kápu bókarinnar

Áður en ég sofna ímynda ég mér …

Í þessari gullfallegu bók fylgjum við lítilli kanínu inn í litríka draumaveröld. Áður en ég sofna er heillandi saga sem hjálpar litlum krílum að róa fjöruga huga rétt fyrir svefninn.

Bækur Bergrúnar Írisar hafa hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar og slegið í gegn hjá lesendum á öllum aldri. Hér tekur hún upp vatnslitina og töfrar fram einlæga og ljúfa sögu fyrir þau sem þykir stundum erfitt að leggjast á koddann.