Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sokkalabbarnir Æsa raknar upp af reiði

  • Höfundur Þorvaldur Davíð Kristjánsson
  • Myndhöfundur Bergrún Íris Sævarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Æsa er í óðaönn að byggja flottan sandkastala þegar Fjóla mætir og byrjar að moka. Fljótlega fer allt í háaloft, veðrið snarversnar og Æsa raknar upp af reiði!

Í landi Sokkalabbanna búa tilfinningarríkir sokkar í ýmsum litum. Með lestri bókarinnar fá börn tækifæri til að skoða og reyna að skilja betur hinar ýmsu tilfinningar, hvort sem þær eru erfiðar, skrítnar eða skemmtilegar.