Ævintýraheimur íslenskra fugla 2

Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari bók kynnumst við 16 fuglategundum af þeim 75-80 sem verpa að staðaldri á Íslandi. Við fræðumst um sögu þeirra, skoðum hvernig þeir líta út og hvað þeir gera dagsdaglæega. Þeir skipta mikklu máli fyrir náttúruna og okkur. Í lok hvers kafla er að finna ljóð, sem börn víðs vegar að af landinu hafa ort um fuglinn sinn.

Hver er drottning Atlantshafsins?

Hvaða fugl var áður nefndur rauðkollur?

Hver gerir sér fljótandi hreiður?

Hver segir „úíka úíka“?

Hver gefur frá sér langdregin, angurvær óp og titrandi hlátur?

Hver er stærsta uglutegundin okkar?

Og hvaða fugl kann að tala íslensku?