Aftur á bak

Herbert Kóki Ólason ævisaga

Forsíða kápu bókarinnar

Það er leitun að manni sem hefur átt jafn ævintýralegt lífshlaup og Herbert Ólason, betur þekktur sem Kóki. Margir þekkja hann úr hestamennsku en það er bara hluti af stórmerkilegri ævi.

Kóki var ungur orðinn goðsögn á Akureyri. Forstjóri, tísku­kóngur, frumkvöðull. Hann sá ­tækifæri þar sem aðrir sáu hindranir og lét sjaldan hefðir eða venjur standa í vegi fyrir sér.

Síðar lá leiðin til Þýskalands þar sem hann ruddi brautina fyrir útflutning íslenskra hesta, opnaði nýjar dyr fyrir íslenska hestamennsku og stofnaði TOP REITER. Líf hans hefur einkennst af ævintýrum, óvæntum uppákomum, sigrum, áföllum, ótrúlegum tilviljunum og óskiljanlegu ástarlífi.

Þetta er saga manns sem hefur ferðast víða, kynnst fólki úr öllum áttum og lent í aðstæðum sem fæstir myndu trúa ef þær væru ekki sannar. Í gegnum allt hefur hann haldið í einstaka lífsgleði og þá trú að jafnvel erfiðustu hindranir geti reynst upphafið að einhverju betra.

Logi Bergmann Eiðsson skrifar persónulega, einlæga og oft bráðfyndna ævisögu manns sem hefur lifað lífinu af fullum krafti og víða skilið eftir sig spor.