Aftur á bak
Herbert „Kóki“ Ólason – ævisaga
Það er leitun að manni sem hefur átt jafn ævintýralegt lífshlaup og Kóki. Margir þekkja hann úr hestamennsku og sem tískukóng á Akureyri forðum, en það er bara hluti af litríkri ævi. Logi Bergmann skrifar hér persónulega, einlæga og oft bráðfyndna ævisögu manns sem hefur lifað lífinu af fullum krafti og víða skilið eftir sig spor.