Amma piparkaka
Viggó á sér eina ósk en til þess að hún geti ræst verður hann að vera eins óþekkur og hann getur. Þegar Dalía vinkona hans mætir á svæðið kvikna nýjar og slæmar hugmyndir og einhver gæti ályktað að ekki væri hægt að baka meiri vandræði. En þá tekur amma Viggós afdrifaríka ákvörðun sem gæti sett hátíðarhöld ársins á annan endann.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er listakona sem fæst við myndlist og skriftir, söng og grín. Hún hefur hlotið verðlaun og tilnefningar fyrir barnabækur sínar, meðal annars til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Barnabókaverðlaunanna Norðurlandaráðs, Barnabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins, Bóksalaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar.