Barnabók

Forsíða kápu bókarinnar

Sigmundur Ernir er alinn upp á Syðri-Brekkunni á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma héldust fábreytni og nægjusemi í hendur og má segja að nýtni og sparsemi hafi verið höfuðdyggðir á heimilum alþýðufólks í bænum. Hér safnar skáldið góðkunna saman munnmælasögum sem eru í senn forkostulegar og gamansamar heimildir um horfinn tíma.

Eftir seinna heimsstríð fjölgaði Akureyringum ört og fyrstu hverfi bæjarins tóku á sig mynd. Á meðan Innbærinn kúrði undir kambi og Oddeyrin þétti raðirnar, flengdist Brekkan upp í hlíð og Þorpið blés í norður. Þar að baki stóð alþýðufólk sem reisti hús sín á mörgum árum, hurð fyrir hurð, á tímum hafta og óðaverðbólgu, svo ekki voru efni á gólfteppi fyrr en seint og um síðir, ef rétti bankastjórinn var á vakt. Annars var þetta vinna hjá Verksmiðjunum og ÚA, en Sjallinn um helgar. Nýja Akureyri er svo miklu fjölbreyttari að sú gamla má ekki gleymast.