Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Bekkurinn minn: Vinabók

  • Höfundur Yrsa Þöll Gylfadóttir
  • Myndhöfundur Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Bekkurinn minn: Vinabók er um þig og vini þína! Manstu eftir gömlu góðu vinabókunum? Þessum sem gengu á milli bekkjarfélaga og allir skrifuðu helstu upplýsingar um sig og sín áhugamál? Bekkurinn minn: Vinabók er í sama anda.

Veistu hvaða litir, bækur, bíómyndir og lög eru í uppáhaldi hjá vinum þínum?

Hvenær eiga þeir afmæli og í hvaða stjörnumerki eru þeir?

Hvort finnst þeim betra, ís eða nammi, steikt skordýr eða prumpusamloka?

Það er aðeins ein leið til að komast að því - biddu vini þína, bekkjarfélaga, liðsfélaga, frændsystkini eða hverja sem þér dettur í hug, um að skrifa svörin í þína bók og þú skrifar í þeirra!