Björk I James Merry

Forsíða kápu bókarinnar

Listasafni Íslands er það sönn ánægja að kynna útgáfu glæsilegrar og ríkulega myndlýstrar bókar í tilefni sýninganna Echolalia eftir Björk og Ummyndlingar eftir James Merry, sem opnaðar voru í safninu 31. maí 2026 og stóðu til 20. sept 2026

Í viðtali sem rithöfundurinn og skáldið Oddný Eir tekur við listamennina er sjónum beint að skapandi samstarfi þeirra og hugmyndavinnunni sem liggur að baki þeim heimum sem móta nýjustu plötur Bjarkar.

Í grein eftir myndlistarýninn Hólmar Hólm er þróun listræns handverks og hönnunarverka James Merry rakin síðastliðinn áratug, með áherslu á uppruna og innblástur þeirra merkingarvídda sem birtast í grímum hans, líkamsskrauti og helgisiðamunum.

Útdráttur úr samtali Bjarkar og skáldsins Ocean Vuong veitir innsýn í þátt listsköpunar í tjáningu djúpstæðrar reynslu af missi og sorg. Þá varpar samræða Bjarkar og Hans Urich Obrists sýningarstjóra og listfræðings ljósi á hið víðfeðma svið miðla sem Björk hefur kannað á ferli sínum.