Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Blindgöng

  • Höfundur Tove Alsterdal
  • Þýðandi Pétur Már Ólafsson
Forsíða bókarinnar

Sonja og Daniel ákveða að stokka upp líf sitt og festa kaup á vínbúgarði í Tékklandi – í héraði sem eitt sinn var kallað Súdetaland. Þau finna göng undir honum – og í þeim gamalt lík af ungum dreng. Þar með er rifið ofan af gömlu sári sem á rætur að rekja til Þýskalands nasismans.

„Hörkuspennandi saga.“ – Adresseavisen

Sonja og Daniel ákveða að stokka upp líf sitt og festa kaup á vínbúgarði í Tékklandi – í héraði sem eitt sinn var kallað Súdetaland. Sá hefur staðið auður og yfirgefinn um áratugaskeið og fékkst á afar lágu verði. Þegar sænsku hjónin taka til við að gera hann upp finna þau göng undir honum – og í þeim gamalt lík af ungum dreng. Þar með er rifið ofan af gömlu sári sem grimmilegar hreinsanir skildu eftir sig í héraðinu og eiga rætur að rekja til Þýskalands nasismans.

Blindgöng er áhrifamikil spennusaga þar sem sögulegir atburðir og nútíð fléttast saman í frásögn af miskunnarleysi mannsins, hefndarfýsn – og tryggð. Tove Alsterdal sýnir hér gamla sögu, örlög innfæddra og Þjóðverja í Súdetalandi í algerlega nýju ljósi – og spyr um leið hversu langt manneskjur eru reiðubúnar að ganga til að bjarga sjálfum sér og þeim sem þær elska.