Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Brotin bein

Forsíða bókarinnar

Morð á ungri vændiskonu og kornabarn sem finnst yfirgefið sama vetrarkvöldið er upphafið að erfiðri rannsókn Kim Stone – sem kemst aftur í kynni við manneskju frá sinni eigin hræðilegu æsku. Þegar þrjár vændiskonur í viðbót finnast myrtar í Svörtulöndum í röð árása gera Kim og liðið hennar sér grein fyrir því að hér er sjúkur raðmorðingi að verki.

Á sama tíma er leitað að foreldri sem skildi ungbarn sitt eftir við lögreglustöðina – en það sem virðist í fyrstu vera sorgleg höfnun tekur fljótlega á sig aðra og mun dekkri mynd. Þegar ung stúlka hverfur vísa rannsóknirnar tvær lögregluliðinu inn í hryllilegan og hulinn heim þar sem Kim lendir í lífshættu við að leiða málin til lykta. Getur Kim ráðið niðurlögum sinna eigin djöfla og stöðvað morðingjann áður en enn eitt lífið glatast?Kim Stone er rannsóknarfulltrúi sem lumar á dökkum leyndarmálum og svífst einskis til að vernda hina saklausu.