Banvænn sannleikur
Hve langt myndir þú ganga til að gæta myrkustu leyndarmála þinna?
Hve langt myndir þú ganga til að gæta myrkustu leyndarmála þinna?
Ísadóra Nótt er sérstök af því að hún er öðruvísi en aðrir. Mamma hennar er álfkona og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af hvoru tveggja.
Engin nótt er svo dimm að ekki komi dagur á eftir.
Fimmtudagur rennur upp og hlutirnir eru óðum að færast í venjulegar skorður. Nema hvað Fimmtudagsmorðklúbburinn virðist hafa sérstakt lag á að laða að sér vandræði. Tíu ára gamalt mál – það sem þeim finnst allra best – leiðir þau að frægum þáttastjórnanda og morði án nokkurs líks né annarra vísbendinga.
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
---|---|---|---|
Bréfið | Kathryn Hughes | Drápa | Tina Craig þráir að losna frá ofbeldisfullum eiginmanni sínum. Hún vinnur myrkranna á milli til að safna fé svo að hún geti farið frá honum og er auk þess í sjálfboðavinnu í nytjaverslun. Hún finnur gamalt bréf í not-uðum jakkafötum í búðinni. Tina opnar bréfið - og allt breytist. |
Brotin bein | Angela Marsons | Drápa | Morð á ungri vændiskonu og kornabarn sem finnst yfirgefið sama vetrarkvöldið er upphafið að erfiðri rannsókn Kim Stone – sem kemst aftur í kynni við manneskju frá sinni eigin hræðilegu æsku. Þegar þrjár vændiskonur í viðbót finnast myrtar í Svörtulöndum í röð árása gera Kim og liðið hennar sér grein fyrir því að hér er sjúkur raðmorðingi að verki. |
Dulmál Katharinu | Jørn Lier Horst | Bjartur | Katharina Haugen hvarf fyrir 24 árum. Hið eina sem hún skildi eftir sig var eiginmaðurinn Martin og undarleg talnaruna á blaðsnifsi Nú er önnur kona horfin. Og líka eiginmaður Katharinu. William Wisting verður að finna Martin, en er hann að reyna að bjarga kærum vini eða kaldrifjuðum morðingja? |
Fagri heimur, hvar ert þú? | Sally Rooney | Benedikt bókaútgáfa | Alice og Felix, Eileen og Simon eru ung en yngjast ekki. Þau þrá hvert annað en svíkja hvert annað samt sem áður. Þau hafa áhyggjur af vináttunni og heiminum sem þau búa í, hvort hann sé kominn á heljarþröm, gegnsýrður af valdaójafnvægi, trúarbrögðum og hamfarahlýnun. Geta þau fundið leið til að trúa á fegurð heimsins? – Bókaklúbburinn Sólin |
Fimmtudagsmorðklúbburinn | Richard Osman | Drápa | Þegar hrottalegt morð á sér stað á þröskuldinum hjá áhguafólki um morðmál er Fimmtudagsmorðklúbburinn allt í einu kominn með glóðvolgt mál að leysa. Þótt Elizabeth, Joyce, Ibrahim og Ron séu að nálgast áttrætt eru þau ekki dauð úr öllum æðum. Sló öll sölumet í Bretlandi þegar hún kom út! |
Fyrsta málið | Angela Marsons | Drápa | Á dimmum og köldum desembermorgni kemur rannsóknarfulltrúinn Kim Stone inn á lögreglustöðina í Halesowen. Hún er að fara að hitta nýja liðið sitt í fyrsta sinn. Fórnarlambið í næsta máli er sömuleiðis að fara að hitta morðingja sinn ... |
Gjöf hjúskaparmiðlarans | Lynda Cohen Loigman | Drápa | Gjöf hjúskaparmiðlarans er yndislega ljúfsár saga af tveimur konum á tveimur mismunandi tímabilum. Gyðingastúlka Sara Glikman kemur til Bandaríkjanna árið 1910 ásamt fjölskyldu sinni og fjölda annarra gyðinga frá Rússlandi. „Vá, ég elska þessa sögu; tvö tímabilin, amman og barnabarnið. Önnur hjúskaparmiðlari, hin skilnaðarlögfræðingur.“ |
Gunnar Örn – Retrospective | Gunnar Örn Gunnarsson, Aldís Arnardóttir og Ólafur Elíasson | Forlagið | Gunnar Örn kom með sprengikrafti inn á svið íslenskrar myndlistar og helgaði sér þar brátt rými. Hann festi sig hvergi í straumum né stefnum en kappkostaði að skapa eigin stíl af einstöku næmi og dirfsku. Hér er haldið til haga verkum þessa fjölhæfa listamanns frá fjörutíu ára ferli hans. |
Handbók fyrir ofurhetjur Sjöundi hluti: Endurheimt | Elias Vahlund | Drápa | Ef eitthvað virðist ekki í lagi er mjög líklegt að það sé ekki í lagi. Börnunum sem voru numin á brott hefur verið skilað og íbúar Rósahæðar geta andað léttar. En er ekki eitthvað skrítið við endurheimtu börnin? Af hverju ætli ræningjarnir hafi bara sleppt þeim? Spennandi ævintýrið heldur áfram! Einn vinsælasti barnabókaflokkur landsins! |
Istanbúl, Istanbúl | Burhan Sönmez | Bjartur | Undir yfirborði hinnar töfrum slungnu borgar, í klefa fjörutíu, hírast fjórir fangar. Þar skiptast neminn Demirtay, læknirinn, rakarinn Kamo og Küheylan frændi á sögum um borgina fyrir ofan til að drepa tíma og hughreysta hver annan. Heillandi saga um mátt ímyndunaraflsins andspænis mótlætinu. |
Ísadóra Nótt á afmæli | Harriet Muncaster | Drápa | Mamma hennar er álfur og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af þessu báðu. Ísadóru finnst afar gaman í veislum hjá mannfólki og nú ætlar hún sjálf að halda veislu! En þar sem foreldrar hennar sjá um skipulagið verður veislan sennilega mjög frábrugðin öðrum veislum sem hún hefur farið í … |
Ísadóra Nótt fer á ballettsýningu | Harriet Muncaster | Drápa | Ísadóra Nótt er sérstök af því að hún er öðruvísi. Mamma hennar er álfur og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af þessu báðu. Ísadóra elskar ballett, sérstaklega þegar hún er í svarta ballettpilsinu sínu og hún getur ekki beðið eftir að fara og sjá alvöru ballettsýningu með bekknum sínum. |
Ísadóra Nótt fer í skóla | Harriet Muncaster | Drápa | Hálf vampíra, hálfur álfur, fullkomlega einstök! Hún hrífst af nóttinni, leðurblökum og svarta ballettpilsinu sínu en þykir líka vænt um sólina, töfrasprotann sinn og Bleiku kanínu. Þegar Ísadóra á að fara í skóla er hún ekki viss um hvar hún tilheyri – í álfaskólanum eða vampíruskólanum. |
Ísadóra Nótt fer í skólaferðalag | Harriet Muncaster | Drápa | Ísadóra Nótt er sérstök af því að hún er öðruvísi. Mamma hennar er álfur og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af þessu tvennu. Börnin í bekknum hennar Ísadóru verða skelkuð þegar þau heimsækja draugalegan kastala í skólaferðalagi – hvað ef það eru draugar í kastalanum? |
Ísadóra Nótt fer í útilegu | Harriet Muncaster | Drápa | Mamma hennar er álfur og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af hvoru tveggja. Þegar þau fara í útilegu við ströndina gerast því auðvitað atburðir sem eru ekki alveg venjulegir. Allt frá því að grilla sykurpúða á báli til þess að vingast við hafmeyju – ævintýrin ekki langt undan! |
Ísadóra Nótt lendir í vandræðum | Harriet Muncaster | Drápa | Ísadóra Nótt er sérstök af því að hún er öðruvísi. Mamma hennar er álfur og pabbi hennar vampíra og hún er blanda af hvoru tveggja. Ísadóru langar að fara með Bleiku kanínu í skólann á gæludýradeginum en stóra frænka hennar, Mírabella, hefur fengið miklu betri hugmynd – af hverju ekki að fara með dreka? Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis …? |
Jólasvínið | J.K. Rowling | Bjartur | Jack á sér uppáhaldsleikfang - lítið tuskusvín. Svínið hefur fylgt honum alla tíð, í gegnum súrt og sætt. Þangað til aðfangadagskvöld eitt að hið hræðilega gerist: svínið týnist. Jólasvínið er fyrsta skáldsaga J.K. Rowling fyrir börn og unglinga eftir að hún lauk við Harry Potter. |
Leyndarmálið | Kathryn Hughes | Drápa | Frá höfundi metsölubókarinnar Bréfið kemur nú Leyndarmálið, áhrifarík og spennandi saga sem ekki er hægt að leggja frá sér. Mary á sér leyndarmál. Fyrir fjörutíu árum tók hún ákvörðun sem breytti lífi hennar um alla framtíð og olli straumhvörfum hjá manneskju sem er henni mjög kær. Frá höfundi Bréfsins, vinsælustu kilju landsins 2021. |
Maðurinn sem dó tvisvar | Richard Osman | Drápa | Elizabeth fær bréf frá gömlum vinnufélaga. Hann hefur gert hrikaleg mistök og þarf á hjálp að halda. Í sögu hans koma við stolnir demantar, ofbeldisfullur mafíósi og hann er í raunverulegri lífshættu. Líkin byrja að hrannast upp og Elizabeth fær þau Joyce, Ibrahim og Ron í lið með sér í leit að hinum kaldrifjaða morðingja. |
Handbók fyrir ofurhetjur Sjötti hluti - Vonlaust | Elias Vahlund | Drápa | Rósahæð er í áfalli. Sjö börn í viðbót hafa horfið sporlaust og fólk er bæði hrætt og reitt. Af hverju gera lögreglan og Rauðan gríman ekki neitt? Getur bærinn ekki stólað á ofurhetjuna sína? Lísa og félagar eru þó að vinna í leyni en það er eitthvað sem gengur ekki upp. |
Skandar og einhyrningaþjófurinn | A.F. Steadman | Benedikt bókaútgáfa | Skandar þráir að verða einhyrningsknapi, útvalinn til þess að tengjast eigin einhyrningi lífstíðarböndum, þjálfa hann og keppa með honum; verða hetja. En lífið tekur óvæntari og óhugnanlegri stefnu en nokkurn getur órað fyrir. Máttugasta einhyrningnum er rænt og Skandar kemst að leyndarmáli sem getur haft hræðilegar afleiðingar fyrir alla. |
Undir yfirborðinu | Freida McFadden | Drápa | Velkomin í fjölskylduna, segir Nina Winchester þegar ég tek í vel snyrta hönd hennar. Ég brosi kurteislega og lít í kringum mig í ríkmannlegu anddyrinu. Starfið hér er síðasta tækifæri mitt til að hefja nýtt líf. Ég get þóst vera sú sem ég vil vera. Fljótlega kemur þó í ljós að leyndarmál Winchester-fjölskyldunnar eru mun ógnvænlegri en mín! |
Upplausn | Sara Blædel og Mads Peder Nordbo | Bjartur | Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin sporlaust á þessari stuttu leið. Hér leggja saman krafta sína tveir höfundar í fremstu röð. |
Handbók fyrir ofurhetjur Þrautabók ofurhetjunnar Óleysanlegt verkefni | Elias Vahlund | Drápa | Komdu með í einstakt og spennandi ævintýri þar sem þú stýrir hluta framvindunnar og færð tækifæri til að verða ofurhetja. Hérna finnurðu líka allt frá bingói, orðapúsli og ritlistar til erfiðra þrauta sem munu endast lengi. Drífum ævintýrið í gang! |
Þögla ekkjan | Sara Blædel | Bjartur | Louise Rick er nýr yfirmaður færanlegrar rannsóknardeildar dönsku lögreglunnar. Fyrsta málið snýst um morð á kráareiganda á Fjóni. Lögreglan á staðnum hefur fáar vísbendingar en þegar Louise setur af stað nákvæma rannsókn á heimili konunnar, sem bjó fyrir ofan krána breytist allt. |