Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Doddi - Bók sannleikans

Forsíða kápu bókarinnar

Það er flókið að finna almennilegar unglingabækur. Sumar eru of þykkar en aðrar of ævintýralegar eða gerast í fornöld. Þessi bók er ALLS EKKI þannig.

Það er flókið að finna almennilegar unglingabækur. Sumar eru of þykkar en aðrar of ævintýralegar eða gerast í fornöld. Þessi bók er ALLS EKKI þannig. Hún fjallar um líf mitt. Ég er fjórtán ára og á mér aðallega tvö áhugamál; skordýr og kvenfólk. Besti vinur minn Pawel á sér líka tvö áhugamál; Evrópusambandið og stærðfræði (ég veit!).

Í þessari bók er sagt frá ýmsum æsandi viðburðum úr lífi mínu, við sögu koma meðal annars sólarlandaferð, hrekkjavökupartý, skordýr og þúsundfætlur, Tindertilraunir mömmu minnar, ólögleg viðskipti við glæpakvendi og fegursta stúlka Íslands. – Doddi (tilvonandi heimsfrægur skordýrafræðingur).