Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dostojevskí og ástin

Ævisaga með hans eigin orðum

Forsíða bókarinnar

Í þessari nýstárlegu ævisögu hefur Alex Christofi ofið í samhengi vandlega valin brot úr verkum rússneska skáldjöfursins Fjodors Dostojevskí. Úr verður heillandi mynd af mögnuðu skáldskaparlífi sem gat af sér nokkrar frægustu skáldsögur heimsbókmenntanna, Glæp og refsingu, Karamazovbræðurna og Fávitann.

Lýst er ævintýralegu lífshlaupi þar sem skammt var öfganna á milli, allt frá fangabúðavist í Síberíu til spilahalla Evrópu og fágaðra vistarvera aðalsins í Pétursborg, og sögð saga kvennanna þriggja sem mörkuðu djúp spor í lífi rithöfundarins – berklaveiku ekkjunnar Maríu, hinnar hvatvísu Polínu og Önnu sem gekk fram fyrir skjöldu til að treysta í sessi bókmenntaarfleifð Dostojevskís.

Alex Christofi útskrifaðist í enskum bókmenntum frá Oxford-háskóla og starfað við ritstjórn á forlögum meðfram skriftum. Dostojevskí og ástin var valin ein af bókum ársins 2021 af bresku blöðunum Times og Sunday Times.

„Afar læsileg, hlý og skemmtileg.“ – Daily Telegraph

„Skrifuð með færni skáldsöguhöfundarins og fangar hina miklu dýpt og margbreytileika í ævi og verkum Dostojevskís.“ – Frances Wilson, New Statesman

„Christofi tekst að afhjúpa persónuleika Dostojevskís með hætti sem er ekki á færi hefðbundinnar ævisagnaritunar.“ – Publishers Weekly

„Gersamlega heillandi, líflegt og frumlegt verk sem maður les eins og skáldsögu.“ – Globe and Mail