Draumurinn um Italíu
Sumarævintýri sem hún aldrei gleymir
Eftir vinnulotu við lögfræðistörf í Wales tekur Lucia sér verðskuldað frí hjá afa sínum og ömmu á Suður-Ítalíu. Sólskinið, sítrónutrén og girnilegur matur ömmu hennar skapar gleðiríkar stundir en ýmislegt verður til þess að Lucia þarf að endurmeta hvað hún vill fá út úr lífinu. Ef þú ert að leita eftir hnyttni og hlýju er Jo Thomas þinn höfundur.
Þetta er fimmta bók breska rithöfundarins Jo Thomas sem kemur út á íslensku en bækur hennar njóta mikilla vinsælda hér á landi sem erlendis og fá jafnan afar góða dóma. Hún skrifar rómantískar bækur um mat, ást, fjölskyldu og skemmtun. Bókum hennar hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi.“