Drottinn blessi heilmikið
Unnur tekur myndir af fuglum, les hugsanir þeirra og setur í orð af skáldlegu innsæi. Hún gerir ekki upp á milli tegunda. Uppáhaldsfuglinn er sá sem hún horfir á hverju sinni. Í þessari bók eru 85 fuglamyndir og tilheyrandi skondnar athugasemdir og fuglahjal.
Unnur Guttormsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1941. Hún er barnasjúkraþjálfari og jafnframt einn af stofnendum og leikskáldum Hugleiks, áhugaleikfélags í Reykjavík.
Ljóðabók hennar Það kviknar í vestrinu kom út árið 2011.
Í október 2021 sendi hún frá sér fuglavisku- og myndabókina Oft eru gamlir hrafnar ernir.