Ég kom til að gráta

Forsíða kápu bókarinnar

Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brest­ir í hjónabandi? Eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig? Við erum öll að glíma við eitthvað, leita jafnvægis, eins og Jónatan sem fer á Snæfellsnes til að biðjast fyrirgefningar og skrifa sig frá erfiðum æskuárum. Áhrifamikil saga, skrifuð af næmi, einlægni og hárfínum húmor.

Fyrir vestan kynnist Jónatan áhugaverðu fólki sem hristir hressilega upp í honum og löngu týndar tilfinningar blossa upp að nýju.

Þarf hugrekki til að vera ástfanginn af lífinu?

Ó þið sem hafið lokast inni

í sjálfbyggðu völundarhúsi.

Eruð þið ekki lángþreytt

á að rekast aftur og aftur

á sama vegginn?

Snúið ykkur við

sjá dyrnar eru hérnamegin

Úti er hábjartur dagur.

Dagur Sigurðarson

Þorgrímur Þráinsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóð­ar­innar sem hefur á löngum ferli snert lesendur með bókum sínum.