Eitt og annað

Forsíða kápu bókarinnar

Vísnakver eftir Þórarin sem geymir yfir eitthundrað nýjar stökur hans, erindi eða kviðlinga undir ýmsum bragarháttum. Ótal teikningar eftir Hugleik Dagsson prýða bókina. Sumar þessara yrkinga nálgast það að vera einskonar spakmæli sem iðulega fá á sig spaugsaman blæ.

Aðrar má líta á sem knappar en þéttar athuganir og íhuganir um eðli manns og heims eða um stöðu mannsins í heiminum:

Skyldi það vera skipulagsslys

sem skapar okkar vanda

að milli himna og helvítis

vor heimur skuli standa?