Ekki opna þessa bók
Hún er fljúgandi furðuhlutur
Þetta er ellefta bókin í þessum frábæra bókaflokki. Auk þess hafa komið út tvær bækur sem kenna stærðfræði. Í þessari bók sogast bláa skrímslið út í geim, fræðist um pláneturnar í sólkerfinu okkar og endar á því að dragast að svartholi. Frábær bók sem hvetur börn til að lesa.