Eldgos

Forsíða bókarinnar

Þegar lúsafaraldur brýst út í skólanum hans Kaktuss bregður leiðsögumaðurinn mamma hans á það ráð að taka hann með sér í vinnuna. Kaktusi þykir íslensk náttúra ekki jafn svakalega spennandi og hinum rútufarþegunum en hann skiptir snögglega um skoðun þegar hann rekur augun í eitthvað rauðglóandi í fjarska ...

Rán Flygenring verðlaunateiknari og rithöfundur er með eldgos á heilanum. Eftir að hafa lagt leið sína hátt í tuttugu sinnum að eldsumbrotunum á Reykjanesi hefur hún nú fundið öllum þeim glumrugangi og glundroða sem hún varð þar vitni að farveg í þessari æsispennandi og stór­hættulegu sögu.

„Þetta er rosalega flott bók.“ Egill Helgason, Kiljunni

„Frábær og frumleg bók." Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðinu

„Óhætt er að mæla með þessari nýju bók fyrir börn á öllum aldri og fullorðið fólk.“ Soffía Auður Birgisdóttir, skáld.is