Eldsbirta

Forsíða bókarinnar

Stuttu eftir að eldgosið við Fagradalsfjall hófst fékk kona sinn dauðadóm. Hún var búsett á Reykjanesi og nýtir síðustu mánuði lífsins til þess að fara að gosinu, þegar heilsa leyfir. Konan upplifir alheim í nýju ljósi og skynjar sterkt að örlög hennar eru aðeins hlekkur í keðju örlaga frá örófi. Ljóðin spretta upp, þankar hennar við ævilok.

Ljóðabókin Eldsbirta er grípandi bók, sannkölluð eldgosabók. Eftir að eldarnir við Fagradalsfjall hófust fékk kona á besta aldri sinn dauðdóm. Hún býr á Reykjanesi og nýtir síðustu stundirnar til þess að fara að gosinu - þá daga er heilsa hennar leyfir.

Konan upplifir alheim og lífið sjálft í nýju ljósi - í ljósi elds og hugar - og skynjar að örlög hennar eru aðeins hlekkur í langri keðju. Hún samsamar sig jörðu og ljóðin spretta upp hvert af öðru - þankar hennar við ævilok.